21. ágúst 2011 |
Léttmessa að kvöldi dags á Reykhólum
Sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir býður í léttmessu í Reykhólakirkju kl. 20.30 í kvöld, sunnudag. Kór Reykhólaprestakalls leiðir sönginn en undirleikari er Viðar Guðmundsson, sem mætir með harmonikuna og allir syngja saman. Kaffi, te eða djússopi eftir messu.