Tenglar

7. september 2016 |

Leyndardómar fjörunnar, þjóðtrú, ótti og óhugnaður

Árleg þjóðtrúarkvöldvaka verður á Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum núna á laugardagskvöld (10. september) og hefst kl. 20. Dagrún Ósk Jónsdóttir sér um vökuna og Ester Sigfúsdóttir töfrar fram yfirnáttúrulegt kaffihlaðborð. Að þessu sinni eru á dagskrá skemmtilegt og fróðlegt spjall um náttúruna, ísbirni, seli, fjöruna, þjóðtrú og þjóðsögur. Auk skemmtilestra sem einkenna þessa kvöldvöku verður boðið upp á viðeigandi tónlistaratriði sem Arnar Snæberg Jónsson sér um. Aðgangseyrir með dulmögnuðu kaffihlaðborði inniföldu er 1.500 krónur. Allir eru hjartanlega velkomnir.

 

Eftirfarandi erindi verða flutt:

 

Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur

Ógnvaldur í undirdjúpunum: Hryllileg samskipti sela og manna

 

Kristinn Schram þjóðfræðingur

Líf og dauði í flæðarmálinu: Þjóðfræði rekafjörunnar

 

Jón Jónsson þjóðfræðingur

Ísbirnir éta ekki óléttar konur!


(Frá Sauðfjársetrinu).

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Jl 2024 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31