Tenglar

12. september 2013 | vefstjori@reykholar.is

Líður að 75 ára afmæli Breiðfirðingafélagsins

Sumarferð Breiðfirðingafélagsins var farin í Borgarfjörð um Jónsmessuleytið.
Sumarferð Breiðfirðingafélagsins var farin í Borgarfjörð um Jónsmessuleytið.

Ekki er ráð nema í tíma sé tekið: Nú þegar er hafinn undirbúningur vegna 75 ára afmælis Breiðfirðingafélagsins sem verður eftir rúma tvo mánuði, en félagið var stofnað 17. nóvember 1938. Þetta kemur fram í Fréttabréfi Breiðfirðingafélagsins, 5. tölublaði þessa árs, sem var að koma út. Greint er frá því, að á fundi átthagafélaganna sem stóðu að spurningakeppninni á liðnum vetri hafi verið ákveðið að halda hana á ný núna í vetur og verður hún í Breiðfirðingabúð eins og áður.

 

Sumarferð félagsins var að þessu sinni farin að Logalandi í Borgarfirði dagana 21.-23. júní. Alls voru 97 manns í ferðinni og þar af 21 yngri en 14 ára. Á vef félagsins eru á annað hundrað myndir úr ferðinni. Myndin sem hérna fylgir er úr þeim hópi og má þar sjá Snæbjörn Kristjánsson formann félagsins fyrir miðju.

 

Í fréttabréfinu er í stórum dráttum gerð grein fyrir fjölbreyttu starfi félagsins allt fram á vor.

 

Fréttabréf Breiðfirðingafélagsins, 5. tbl. 2013

Vefur Breiðfirðingafélagsins

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Jl 2024 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31