Líður að Reykhóladögum 2012
Héraðshátíðin Reykhóladagar 2012 byrjar núna á fimmtudagskvöld og stendur fram á sunnudag. Vonandi finna þar sem allra flestir eitthvað við sitt hæfi, heimafólk jafnt sem gestir. Dagskráin er fjölbreyttari en nokkru sinni fyrr. Hana má finna hér, svo og í dagatalinu hér efst til hægri á vefnum. Líka er fólk hvatt til að fylgjast bæði með síðunni visitreykholahreppur.is og Facebook-síðu Reykhóladaganna vegna hugsanlegra smábreytinga á dagskránni. Þarna er nú m.a. komið inn nýtt kynningarefni.
Harpa Eiríksdóttir ferðamálafulltrúi Reykhólahrepps heldur úti áðurnefndum vefsíðum, en hún hefur núna eins og í fyrra borið ásamt fleira góðu fólki hitann og þungann af því að koma saman dagskrá Reykhóladaganna. Hún veitir jafnframt nánari upplýsingar og tekur við skráningum í alla viðburði í netfanginu info@reykholar.is og í síma 894 1011.
Minnt skal á skreytingakvöldið á þriðjudagskvöld.
► Hér má finna svipmyndir frá Reykhóladögum 2011
Harpa Eiríksdóttir, mnudagur 23 jl kl: 07:33
ekki má gleyma Lóu á Kambi og Fanney Sif en þær hafa verið með mér í Reykhóladaganefndinni og eiga heiðurinn skilið