Tenglar

7. febrúar 2012 |

Líður að aðalfundi Breiðfirðingafélagsins

Aðalfundur Breiðfirðingafélagsins verður haldinn í Breiðfirðingabúð við Faxafen á fimmtudagskvöldið í næstu viku. „Eins og ævinlega mun Félag breiðfirskra kvenna sjá um kaffi og meðlæti“, segir í nýjasta fréttabréfi Breiðfirðingafélagsins. Starfsemi félagsins er í fullum gangi og gengur vel eins og endranær. Félagsvist er spiluð á sunnudögum og bridge á sunnudagskvöldum. Þátttaka í spilum hefur verið góð í vetur. Prjónakaffið heldur sínu striki og er alltaf vel sótt. Vísnakvöldin halda áfram og hefur aðsókn verið að aukast, að því er þar kemur fram.

 

Fréttabréf Breiðfirðingafélagsins má lesa á vef félagsins.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31