Tenglar

19. október 2013 | vefstjori@reykholar.is

Líður að haustfagnaði sauðfjárbænda í Dölum

Árlegur haustfagnaður Félags sauðfjárbænda í Dölum (FSD) verður komandi föstudag og laugardag, 25.-26. október, með fjölbreyttri sauðfjártengdri dagskrá að hætti heimamanna. Einstakir liðir verða á ýmsum stöðum en byrjað verður á lambhrútasýningu í Laxárdal um hádegi á föstudag. Sviðaveisla verður á Laugum í Sælingsdal á föstudagskvöld en á laugardag verður mikið umleikis í Reiðhöllinni í Búðardal. Fagnaðinum lýkur með grillveislu og stórdansleik.

 

Lambhrútasýningar

Lambhrútasýningar verða í Dalahólfi á föstudag kl. 12 í Gröf í Laxárdal og í Vesturlandshólfi á laugardag kl. 10 á Harrastöðum í Miðdölum. Keppt er flokkum hyrndra, kollóttra og mislitra/ferhyrndra hrúta. Í lok hvers flokks gefst mönnum tækifæri að þukla á hrútunum og leggja sitt eigið mat á niðurstöður dómaranna. Frír aðgangur er á lambhrútasýningar.

 

Sviðaveisla

Sviðaveisla, hagyrðingar, skemmtun og dansleikur verður á föstudag kl. 19.30 á Laugum í Sælingsdal. Í boði verða svið, sviðalappir og fleira. Hagyrðingar verða Kristján Ragnarsson, Jóhannes Haukur Hauksson, Ásmundur Óskar Einarsson, Helgi Björnsson og Helgi Zimsen. Stjórnandi verður Gísli Einarsson og einnig mætir Jóhannes Kristjánsson eftirherma. Um dansleikinn sjá Vestfirðingarnir Þórunn og Halli. 16 ára aldurstakmark er á dansleikinn. Miðapantanir á sviðaveisluna eru hjá Berglindi í síma 434 1660 / 846 6012 til mánudags. Forsala á sviðaveislu verður í gamla bakaríinu á fimmtudag kl. 15-17. Aðgangseyrir er kr. 5.000.

 

Reiðhallardagskrá

Sjötta Íslandsmeistaramótið í rúningi verður í Reiðhöllinni í Búðardal og hefst kl. 14 á laugardag. Núverandi Íslandsmeistari í rúningi er Jóhann Hólm Ríkarðsson í Gröf í Laxárdal. Fimmta hönnunarsamkeppnin úr íslenskri ull í samvinnu við Ístex. Skráningar eru á staðnum og í ár skal hanna eitthvað til að verma háls/herðar úr íslenskri ull með frjálsri tækni. Þá munu nokkrar konur úr héraði vera með sýningu á ullarvinnslu. Hægt verður að prófa að spinna á rokk og kemba ull. Barnadagskrá, ullarvinnsla, markaður, vélasýningar og veitingasala verða og í Reiðhöllinni. Hún verður opnuð kl. 13 og enginn aðgangseyrir.

 

Grillveisla

Haustfagnaðinum lýkur að vanda með grillveislu að hætti FSD í Dalabúð í Búðardal á laugardagskvöld og hefst hún kl. 18.30. Þar munu félagar úr Meistarafélagi kjötiðnaðarmanna grilla íslenskt lambakjöt. Verðlaunaafhendingar úr lambhrútasýningum, afurðahæstu ærnar og ljósmyndasamkeppni FSD. Myndefnið er leitir, réttir og smalamennskur í Dalasýslu haustið 2013. Grín, söngur og gaman verða einnig á matseðlinum. Aðgangseyrir er kr. 1.500. Frítt er fyrir 14 ára og yngri í fylgd með forráðamönnum.

 

Stórdansleikur

Hefðbundinni dagskrá haustfagnaðar lýkur með stórdansleik á miðnætti þar sem Veðurguðirnir munu halda uppi fjörinu langt fram eftir nóttu. Aðgangseyrir á dansleikinn eru kr. 3.000 og 16 ára aldurstakmark.

 

Ýmsar frekari upplýsingar um einstaka liði dagskrárinnar má finna hér.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31