19. október 2012 |
Líður að hlaðborðunum árvissu í Bjarkalundi
Fyrstu árin voru jóla- og villibráðarhlaðborðin í Bjarkalundi í aðdraganda jóla tvisvar hverju sinni en sakir vaxandi vinsælda voru þau þrjú á síðasta ári og svo verður einnig nú. Að þessu sinni verða þau heldur seinna en í fyrra eða laugardagskvöldin 17. og 24. nóv. og 1. des. Veislustjóri verður Pétur Jóhann leikari (Já sæll) sem áður hefur komið við sögu í Bjarkalundi með eftirminnilegum hætti.
Kolla hótelstýra í Bjarkalundi biður fólk um að panta með góðum fyrirvara.