25. mars 2010 |
Líður að lokum frests hjá Menningarráði
Menningarráð Vestfjarða minnir á að umsóknarfrestur vegna fyrri úthlutunar ráðsins á árinu 2010 rennur út á miðnætti á sunnudagskvöld, þann 28. mars. Hægt er að senda inn umsóknir í gegnum rafrænt form á vefsíðu Menningarráðsins - www.vestfirskmenning.is - eða sem viðhengi í tölvupósti. Einnig má póstsenda umsóknir. Úthlutunarreglur má nálgast á vef ráðsins en að þessu sinni verður sérstaklega litið til verkefna sem lúta að eflingu samstarfs á sviði menningarmála á svæðinu, nýsköpun í verkefnum tengdum menningu, fjölgun atvinnutækifæra í tengslum við menningarstarf og eflingu menningartengdrar ferðaþjónustu og ferðatengdrar menningarstarfsemi. Alls kyns önnur menningarverkefni eiga þó einnig möguleika á styrk.
Á árinu 2009 fengu samtals 85 verkefni styrki frá Menningarráði Vestfjarða við tvær úthlutanir, á bilinu 50 þúsund til 1,4 milljónir hvert verkefni. Það ár bárust ráðinu samtals 178 umsóknir um stuðning við fjölbreytt menningarverkefni um Vestfirði alla.
Um er að ræða samkeppnissjóð og eru umsóknir og verkefni borin saman á samkeppnisgrundvelli. Því er mikilvægt að saman fari vel afmörkuð og áhugaverð menningarverkefni og vandaðar og ítarlegar umsóknir til að jákvæð niðurstaða fáist.
Jón Jónsson á Kirkjubóli við Steingrímsfjörð, menningarfulltrúi Vestfjarða, gefur allar nánari upplýsingar í síma 891 7372 eða í netfanginu menning@vestfirdir.is.