Tenglar

24. október 2009 |

Líður að lokum umsóknarfrests hjá Menningarráði

Jón Jónsson menningarfulltrúi.
Jón Jónsson menningarfulltrúi.
Nú er tæp vika til stefnu til að sækja um styrki til Menningarráðs Vestfjarða við seinni úthlutun á árinu 2009. Þegar eru komnar nokkrar ágætar umsóknir í hús, segir í tilkynningu. Umsóknarfrestur er til 30. október og sækja þarf um styrki til afmarkaðra menningarverkefna á Vestfjörðum. Umsóknir eru bornar saman á samkeppnisgrundvelli, þannig að fara þurfa saman áhugaverð verkefni og góðar umsóknir til að líkur séu á að styrkur fáist. Menningarráð Vestfjarða hefur skilgreint ákveðna áhersluþætti við hverja úthlutun fram að þessu og við seinni úthlutun 2009 verður litið sérstaklega til menningarverkefna sem fela í sér eftirtaldar áherslur:

 

   a. Nýsköpun á sviði lista og menningarstarfs.

   b. Verkefni sem miða að fjölgun starfa.

   c. Samstarf milli menningarstofnanna, byggðarlaga eða listgreina og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað.

   d. Verkefni sem miða að því að ungt fólk komi í auknum mæli að listsköpun og menningarstarfi á Vestfjörðum.

 

Athygli er vakin á því að styrkir einskorðast ekki við þessar áherslur og umsóknir um annars konar menningarverkefni eiga einnig fullt erindi.

 

Rafrænt umsóknarblað, leiðbeiningar og úthlutunarreglur er að finna á vef Menningarráðs Vestfjarða - vestfirskmenning.is. Í úthlutunarreglum er skilgreint hvernig verkefni Menningarráðið styður og einnig má skoða eldri úthlutanir til að fá hugmynd um það. Styrkir til verkefna hafa verið á bilinu 50 þúsund til 1,5 milljón.

 

Allar nánari upplýsingar gefur menningarfulltrúi Vestfjarða, Jón Jónsson á Kirkjubóli, í síma 891 7372 og netfanginu menning@vestfirdir.is.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31