10. janúar 2018 | Sveinn Ragnarsson
Liðveitandi óskast
Óskað er eftir liðveitanda með 10 ára fötluðum dreng. Um er að ræða hlutastarf. Viðkomandi þarf að geta fylgt drengnum í félagsstarf og farið með honum í sund.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi VerkVest.
Umsóknir berist til Maríu Játvarðardóttur félagsmálastjóra Maríutröð 5a Reykhólum eða á netfangið felagsmalastjori@strandabyggd.is. Upplýsingar eru veittar í síma 842-2511.