12. september 2014 | vefstjori@reykholar.is
Lífleg norðurljós ef skyggni leyfir
Fremur léttskýjað er við innanverðan Breiðafjörð núna undir kvöld föstudags og sæmilegar líkur á því að svo verði í nótt. Öflugir sólstormar skella á jörðinni þessa dagana, ef svo má nefna það fyrirbæri. Þeir eru mjög segulmagnaðir og því gætu raftæki og raforkuver verið í hættu, en sú hætta er þó ekki talin mikil.
Sólstormarnir, sem verða til í miklum gosum á sólinni, eru samt ekki nægilega kröftugir til að valda verulegum áhyggjum, að sögn vísindamanna. Töluverð norðurljósavirkni er samfara sólstormum og verður hægt að bera norðurljósin augum á norðvesturhluta landsins í kvöld ef skyggni leyfir.