Tenglar

18. janúar 2014 | vefstjori@reykholar.is

Lífshlaupið um land allt í sjöunda sinn

Lífshlaupið, heilsu- og hvatningarverkefni ÍSÍ, verður ræst í sjöunda sinn miðvikudaginn 5. febrúar. Þessi viðburður höfðar til allra landsmanna og gefst kostur á að taka þátt í vinnustaða-, grunnskóla- og einstaklingskeppni, þar sem hver og einn getur skráð inn sína hreyfingu allt árið.

 

„Við hvetjum alla landsmenn til þess að taka þátt í Lífshlaupinu,“ segir í tilkynningu frá almenningsíþróttasviði Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Opnað hefur verið fyrir skráningu vinnustaða, grunnskóla og einstaklinga á www.lifshlaupid.is.

 

Núna eru fleiri valmöguleikar við skráningu en áður hefur verið. Nú getur einn aðili séð um að skrá mörg lið til leiks og einnig er hægt að velja á milli þess að skrá alla starfsmenn í sama liðið eða setja upp liðakeppni innan vinnustaðarins.

 

Þeir sem hafa áhuga á því að fá send veggspjöld geta sent tölvupóst á lifshlaupid@isi.is.

 

Smelltu hér og kynntu þér málið betur.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31