Líka verði tekið á vanda á Vestfjörðum og víðar
Í tilefni fréttar á visir.is í dag vill Fjórðungssamband Vestfirðinga samfagna sveitarfélögum á Norðurlandi vestra með þann árangur sem þau hafa náð í samstarfi við stjórnvöld um fé til uppbyggingar á sviði nýsköpunar og menningar og í heilbrigðisþjónustu landshlutans. Það er hins vegar miður, að ekki er tekið á tilllögum um tilflutning opinberra starfa, sem var annað meginhlutverk samstarfsnefndar ríkis og sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.
Þetta kemur fram á vef Fjórðungssambandsins. Þar segir einnig:
Fjórðungssamband Vestfirðinga leggur í framhaldinu áherslu á að ríkisstjórnin taki á sambærilegan hátt á þeim sértæka vanda sem langvarandi fólksfækkun veldur á svæðum eins og á Vestfjörðum og víðar. Mótaðar tillögur um verkefni á Vestfjörðum á sviði nýsköpunar og menningar liggja fyrir í Sóknaráætlun Vestfjarða, auk áherslna um fjölgun opinberra starfa á sértækum starfssviðum. Úr þeim tillögum er hægt að vinna á tiltölulega skömmum tíma, núna þegar vilji stjórnvalda liggur fyrir um veita slíkum verkefnum brautargengi með ásættanlegum fjárveitingum.