Lions: Saltkjötið og bókmenntakynningin árvissa
Árleg saltkjötsveisla og bókmenntavaka Lions í Reykhólahreppi verður í matsal Reykhólaskóla föstudagskvöldið 8. mars. Samkvæmt hefðinni er hverju sinni kynning á einu skáldi úr héraðinu og verkum þess. Núna er komið að Guðmundi Arinbirni Jónssyni frá Hyrningsstöðum. Von er á góðum gestum frá Lionsklúbbnum í Búðardal sem endranær og verður sitthvað á dagskránni auk kynningarinnar.
Eftir Guðmund Arinbjörn Jónsson frá Hyrningsstöðum (1918-1984) liggur ein ljóðabók. Hún kom út árið 1970 og ber heitið Barmahlíð.
Allir eru velkomnir eins og venjulega. Enn á ný skal tekið sérstaklega fram, að saltkjötsveislur þessar eru alls ekki einskorðaðar við Lionsfélaga.
Húsið verður opnað kl. 20 og borðhald hefst kl. 20.30.
Miðapantanir í síma 898 7783 (Ingvar).