Listi Framsóknarflokks í NV-kjördæmi frágenginn
Framboðslisti Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar í næsta mánuði var samþykktur á aukakjördæmisráðsþingi á Reykjum í Hrútafirði í dag. Efstu sæti listans eru í samræmi við úrslit prófkjörs. Þrjú efstu sætin skipa Gunnar Bragi Sveinsson á Sauðárkróki, Guðmundur Steingrímsson í Reykjavík og Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson í Borgarfirði. Magnús Stefánsson alþingismaður skipar heiðurssætið.
Listinn er þannig í heild:
1. Gunnar Bragi Sveinsson, 40 ára sveitarstjórnarmaður, Sauðárkróki
2. Guðmundur Steingrímsson, 36 ára blaðamaður, Reykjavík
3. Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson, 33 ára bóndi, Borgarfirði
4. Elín R. Líndal, 53 ára bóndi og framkvæmdastjóri, Húnaþingi vestra
5. Halla Signý Kristjánsdóttir, 44 ára fjármálastjóri, Bolungarvík
6. Helgi Pétur Magnússon, 24 ára laganemi, Akranesi
7. Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir, 38 ára lögfræðingur, Strandasýslu
8. Eygló Bára Jónsdóttir, 38 ára hárgreiðslumeistari, Grundarfirði
9. Ólöf Birna Björnsdóttir, 32 ára verkefnastjóri og sveitarstjórnarmaður, Húnavatnshreppi
10. Garðar Freyr Vilhjálmsson, 19 ára framhaldsskólanemi, Skagafirði
11. Svanlaug Guðnadóttir, 46 ára bæjarfulltrúi, Ísafirði
12. Heiðar Lind Hansson, 22 ára sagnfræðinemi, Borgarnesi
13. Magnús Arnar Sigurðarson, 28 ára nemi, Patreksfirði
14. Halldór Friðgeirsson, 32 ára skipstjóri, Drangsnesi
15. Steinunn Guðmundsdóttir, 18 ára framhaldsskólanemi, Akranesi
16. Kristján Jóhannsson, 63 ára starfsmaður MS, Búðardal
17. Rebekka Ýr Karlsdóttir, 19 ára framhaldsskólanemi, Bolungarvík
18. Magnús Stefánsson, 48 ára alþingismaður, Ólafsvík