Tenglar

21. mars 2009 |

Listi Samfylkingarinnar í NV-kjördæmi frágenginn

Á kjördæmisþingi Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi sem haldið er á Akranesi í dag var samþykktur framboðslisti flokksins fyrir komandi alþingiskosningar. Á listanum eru jafnmargar konur og karlar og hlutfall kynja er jafnt í efstu tíu sætunum. Þær breytingar hafa orðið frá prófkjöri flokksins, að sr. Karl V. Matthíasson hefur yfirgefið flokkinn og skipar því ekki 4. sæti listans. Þórður Már Jónsson á Bifröst, Anna Kristín Gunnarsdóttir á Sauðárkróki og Ragnar Jörundsson á Patreksfirði færast því upp um eitt sæti frá úrslitum prófkjörsins. Guðbjartur Hannesson, Ólína Þorvarðardóttir og Arna Lára Jónsdóttir skipa þrjú efstu sætin.

 

Listinn er þannig í heild:

 

  1. Guðbjartur Hannesson alþingismaður, Akranesi

  2. Ólína Þorvarðardóttir þjóðfræðingur, Ísafirði

  3. Arna Lára Jónsdóttir verkefnastjóri, Ísafirði

  4. Þórður Már Jónsson viðskiptalögfræðingur, Borgarfirði

  5. Anna Kristín Gunnarsdóttir nemi og varaþingmaður, Sauðárkróki

  6. Ragnar Jörundsson bæjarstjóri, Patreksfirði

  7. Hulda Skúladóttir kennslu- og námsráðgjafi, Hellissandi

  8. Valdimar Guðmannsson iðnverkamaður, Blönduósi

  9. Einar Benediktsson verkamaður, Akranesi

10. Kristín Sigurrós Einarsdóttir verkefnastjóri, Hólmavík

11. Ragnhildur Sigurðardóttir umhverfisfræðingur og bóndi, Snæfellsnesi

12. Hörður Unnsteinsson stjórnmálafræðinemi, Borgarnesi

13. Guðrún Helgadóttir háskólakennari, Sauðarárkróki

14. Jón Hákon Ágústsson sjómaður, Bíldudal

15. Ásdís Sigtryggsdóttir vaktstjóri, Akranesi

16. Sigurður Þór Ágústsson skólastjóri, Hvammstanga

17. Johanna E. Van Schalkwyk framhaldsskólakennari, Grundarfirði

18. Karvel Pálmason fv. alþingismaður, Bolungarvík

 

Komi til breytinga á kosningalögum fyrir komandi alþingiskosningar ítrekar kjördæmisráð ályktun sína frá kjördæmisþingi í Borgarnesi 21. febrúar um að styðja það mál.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31