14. janúar 2017 | Umsjón
Ljósleiðaramál á réttri leið
Fyrri hluta (A-hluta) í umsóknarferli Fjarskiptasjóðs vegna verkefnisins Ísland ljóstengt 2017 lauk núna á miðvikudag. Reykhólahreppur er meðal þeirra 35 sveitarfélaga sem skiluðu inn gögnum. Fáein þessara sveitarfélaga þurfa að ljúka markaðskönnun áður en lokafrestur vegna seinni hlutans (B-hluta) rennur út 26. janúar. Að öðru leyti uppfylla þau öll kröfur til gagna vegna A-hlutans.
Þetta kemur fram á vef innanríkisráðuneytisins.
Könnun varðandi ljósleiðara (Reykhólavefurinn 9. janúar 2017).