Tenglar

30. mars 2010 |

Lög um verndun Breiðafjarðar endurskoðuð

Dílaskarfar í Kirkjuskeri á Breiðafirði.
Dílaskarfar í Kirkjuskeri á Breiðafirði.
Nýlega skipaði Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra starfshóp sem á að gera úttekt á lögum um verndun Breiðafjarðar. Hópnum er ætlað að skoða hvort framkvæmd laganna endurspegli tilgang þeirra og hvort ástæða sé til að fara út fyrir núverandi fyrirkomulag í lögum með það að markmiði að náttúruvernd og verndaraðgerðir verði í samræmi við breyttar áherslur í náttúruvernd frá því að lögin voru sett.

 

Þetta bar meðal annars á góma í ávarpi ráðherrans á ársfundi Náttúrufræðistofnunar Íslands. Ráðherrann sagði þar að náttúruvernd strandsvæða og verndun svæða í sjó væri eitt af áherslumálum ríkisstjórnarinnar.

 

„Framkvæmd og innleiðing náttúruverndaráætlunar hefur verið til sérstakrar skoðunar í umhverfisráðuneytinu en ég hef verið mjög hugsi yfir því hversu illa gengur að ná fram markmiðum hennar. Frá því í haust hefur starfshópur unnið að því að skilgreina framkvæmd áætlunarinnar með það að markmiði að gera hana skilvirkari. Munu tillögur liggja fyrir á næstu vikum", sagði ráðherra.

 

Ávarp ráðherra má lesa í heild hér á vef umhverfisráðuneytisins.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31