Tenglar

8. maí 2014 | vefstjori@reykholar.is

Lögheimili: Skráningarfrestur rennur út á morgun

Mikilvægt er fyrir kjósendur að skráning lögheimilis sé rétt á viðmiðunardegi kjörskrár, 10. maí, þar sem af því ræðst - eftir atvikum - í hvaða kjördeild eða sveitarfélagi viðkomandi á að greiða atkvæði. Óheimilt er að breyta skráningu í kjörskrá ef tilkynning um nýtt lögheimili hefur ekki borist Þjóðskrá Íslands fyrir viðmiðunardag. Síðustu forvöð að tilkynna um nýtt lögheimili til Þjóðskrár eru á morgun, föstudaginn 9. maí.

 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá deildarstjóra almannaskráningar hjá Þjóðskrá Íslands.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Nvember 2024 »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30