6. maí 2016 |
Lokahátíð með leiksýningu
Minnt skal á lokahátíð sunnudagaskólanna í Dala-, Hólmavíkur- og Reykhólaprestakalli, sem verður í Tjarnarlundi í Saurbæ núna á sunnudag, 8. maí, og hefst kl. 13. Á dagskránni verður spennandi leiksýning með Hafdísi og Klemma, sem að minnsta kosti krakkarnir ættu nú að þekkja, en sýningin hentar öllum aldurshópum. Grillaðar pylsur og Svali verða í boði.
Sr. Anna, sr. Sigríður og sr. Hildur Björk hlakka til að eiga skemmtilega stund með hátíðargestum.