Tenglar

12. september 2012 |

Lokahóf frjálsíþrótta hjá UDN haldið á Reykhólum

Lokahóf frjálsíþróttaráðs Ungmennasambands Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga (UDN) verður haldið á Reykhólum á fimmtudaginn, 13. september. Veittar verða viðurkenningar fyrir þátttöku, góða mætingu á æfingar og mót í sumar, besta afrekið og miklar framfarir á árinu.

 

Hófið hefst við Reykhólaskóla kl. 19. Kolin verða heit um hálftíma síðar. Um að gera að koma með eitthvað gott á grillið.

 

Frjálsíþróttaráð UDN vonast til að sjá sem allra flesta hressa og káta.

 

UDN tók á sig núverandi form árið 1972 þegar sameinuð voru Ungmennasamband Dalamanna (stofnað árið 1918) og Ungmennasamband Norður-Breiðfirðinga (stofnað árið 1936).

 

11.11.2008 UDN 90 ára - Ungmennafélög voru í öllum hreppum austursýslunnar

Heimasíða UDN

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31