22. júlí 2011 |
Lostalengjur og rauðmagi á sveitamarkaði í Nesi
Núna á sunnudaginn kl. 13-18 verður haldinn sveitamarkaður í Kaupfélaginu gamla í Króksfjarðarnesi þar sem handverks-, nytja- og bókamarkaður Össu er einnig til húsa. Þar verður hægt að kaupa reyktan rauðmaga, heimagerð bjúgu, rúllupylsuálegg, hangikjöt og ferskt kjöt, sem og lostalengjur, sem eru kindavöðvar léttreyktir og maríneraðir í aðalbláberjakryddlegi. Einnig má fá þar tómata frá Reykhólum, krækling og krydd úr íslenskum jurtum.
Vonast er til að sem flestir leggi leið sína á markaðinn í Nesi, geri góð kaup, sýni sig og sjái aðra.