24. nóvember 2014 | vefstjori@reykholar.is
Lottó: 6,6 milljónir á miða keyptan á Reykhólum
Tveir heppnir miðaeigendur voru með allar tölurnar réttar í útdrætti vikunnar í Lottóinu og skiptu með sér fyrsta vinningnum. Fengu þeir rúmar 6,6 milljónir í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Hólakaupum á Reykhólum og Kúlunni við Réttarholtsveg í Reykjavík.