4. desember 2018 | Sveinn Ragnarsson
Lumar einhver á gömlum myndum af rútum?
Fyrirspurn barst um hvort mögulega einhver gæti átt myndir af gömlum Dala-rútum.
Það eru D-11 eða D-15 sem um ræðir.
Annar hvor þeirra gæti hafa verið frambyggður Chevrolet módel 1942
sem upprunalega var vörubifreið en breytt í rútu af Guðbrandi Jörundssyni (Dala-Brandi) um 1944-45.
Rútan sú gæti hafa farið útaf 1946 og eyðilagst???
Ég væri þakklátur ef einhverjar upplýsingar um þennan bíl fengjust.
M.bkv.
Reynir Oddsson
unnsteinn ólafson, rijudagur 04 desember kl: 16:44
farðu inná ljósmyndir ,myndasöfn gamlar myndir hér á link til hliðar mynd af rútu við bjarkalund