Tenglar

22. maí 2013 | vefstjori@reykholar.is

Lýst eftir umsóknum í Vinnuskóla Reykhólahrepps

Jón Kjartansson og vinnuskólafólk 2011 stilla sér upp fyrir myndatöku.
Jón Kjartansson og vinnuskólafólk 2011 stilla sér upp fyrir myndatöku.

Vinnuskóli Reykhólahrepps starfar sumarið 2013 frá 3. júní til og með 19. júlí, með þeim fyrirvara að næg þátttaka náist. Unnið verður í tveimur lotum með vikuhléi á milli. Fyrri lotan verður 3.-21. júní og seinni lotan 1.-19. júlí. Flokksstjóri verður Jón Kjartansson.

 

Rétt til starfa í vinnuskólanum hafa ungmenni fædd 1997-2000, nemendur í Reykhólaskóla skólaárið 2012-2013. Hámarksfjöldi nemenda verður 10. Helstu verkefni verða sem fyrr: Garðsláttur og hreinsun opinna svæða svo og lítils háttar viðhaldsverkefni og annað tilfallandi. Gert er ráð fyrir að 15 ára og eldri vinni með vélorf og við erfiðari störf.

 

Vinnutíminn er 6 stundir á dag, kl. 9-12 og 13-15.

 

Vinsemd og virðing eru höfð að leiðarljósi í Vinnuskólanum.

 

Reglur Vinnuskólans er að finna hér.

 

Umsóknareyðublað er að finna hér og á skrifstofu Reykhólahrepps. Hægt er að skila umsóknum á skrifstofuna eða senda í netfangið reykholar@reykholar.is. Umsóknarfrestur er til 30. maí. Athugið að foreldri eða forráðamaður þarf að undirrita umsóknina. Nánari upplýsingar í síma 434 7880.

 

Umsóknareyðublöðin og reglurnar má einnig sækja í reitnum Umsóknir og reglur hér allra neðst á síðunni.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31