Tenglar

19. desember 2016 | Umsjón

Mættu gjarnan fleiri mæta

Síðustu tvö þriðjudagskvöld hafa menn komið saman að tefla skák í föndurstofu Barmahlíðar á Reykhólum. Að sögn upphafsmannsins Guðjóns D. Gunnarssonar (Dalla) hefur mæting verið „hófleg“ eða sex og sjö manns, en sigurvegarar þessi kvöld voru Eiríkur Kristjánsson og Hlynur Þór Magnússon. „Til stendur að halda þessu áfram og mættu gjarnan fleiri mæta,“ segir Dalli.

 

Taflið hefst í þriðja sinn í röð kl. 20 annað kvöld, þriðjudag.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Desember 2024 »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31