Tenglar

13. mars 2013 | vefstjori@reykholar.is

Makalaus sambúð á Hólmavík

Leikendurnir í Makalausri sambúð.
Leikendurnir í Makalausri sambúð.
1 af 3

Leikfélag Hólmavíkur frumsýnir gamanleikinn Makalausa sambúð í Félagsheimilinu á Hólmavík á föstudagskvöld, 15. mars, og hefst sýningin kl. 19. Næstu sýningar verða mánudaginn 18. mars kl. 21, föstudaginn 22. mars kl. 20 og á páskadag, 31. mars, kl. 20. Leikarar eru átta og hópur aðstoðarfólks að auki. Leikfélagið stefnir að sýningarhaldi á fleiri stöðum en það mun koma betur í ljós síðar.

 

Gamanleikurinn Makalaus sambúð er eftir Neil Simon. Þýðandi verksins og leikstjóri er Ásgeir Sigurvaldason. Formaður Leikfélags Hólmavíkur er Ingibjörg Emilsdóttir.

 

Leikendurnir átta í verkinu eru á myndum nr. 1 og 2. Á mynd nr. 3 (plakatinu) eru nánari upplýsingar.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31