Tenglar

21. maí 2012 |

Málaferli vegna SpKef íhuguð

Stjórn Samtaka stofnfjáreigenda í Sparisjóðnum í Keflavík hefur sent vef Reykhólahrepps eftirfarandi tilkynningu og óskað eftir því að hún yrði birt:

 

Samtök stofnfjáreigenda í Sparisjóðnum í Keflavík hafa ákveðið að vera með aðalfund miðvikudaginn 30. maí 2012 og hefst fundurinn kl. 18 í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Áhugi er á því að vera með fjarfundarbúnað á fundinum svo flestir stofnfjáreigendur geti fylgst með. Háskólasetur Vestfjarða kemur til með að aðstoða okkur ásamt fleirum.

 

Það virðist hafa myndast áhugi með fólki á því að skoða málsókn á hendur yfirmönnum, stjórn og endurskoðendum Sparisjóðsins í Keflavík.

 

Sigríður Rut Júlíusdóttir lögmaður samtakanna ætlar að mæta á fundinn og kynna fyrir okkur hvernig staðið yrði að þessum málaferlum.

 

Reikningar félagsins verða kynntir og ýmis önnur hagsmunamál rædd.

 

Kveðja, stjórnin.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31