Tenglar

14. október 2015 |

Málefnum fatlaðs fólks skilað aftur til ríkisins?

Tekjustofnar sveitarfélaga hafa verið áberandi í ályktunum landshlutasamtaka sveitarfélaga, en þau halda aðalfundi sína nú á haustdögum. Nú þegar hafa aðalfundir Sambands sveitarfélaga á Austurlandi, Eyþings, Fjórðungssambands Vestfirðinga og Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum farið fram, sem og haustþing Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Aðalfundir annarra landshlutasamtaka sveitarfélaga verða haldnir síðar í þessum mánuði.

 

Í ályktun Sambands sveitarfélaga á Austurlandi segir m.a.:

 

Mikilvægt er að renna styrkari stoðum undir tekjustofna sveitarfélaga. Útgjöld sveitarfélaga hafa vaxið og verkefnum fjölgað, en tekjuliðir hafa ekki fylgt þeirri þróun. Mikilvægt er að sveitarfélög fái aukna hlutdeild í heildarskatttekjum samfélagsins. Ýmsar atvinnugreinar, s.s. ferðaþjónusta, skapa tekjur í heimabyggð en kalla einnig á aukin útgjöld, bæði við ferðamannastaði og við ýmsa innviði samfélagsins. Því beinir fundurinn því til stjórnvalda og Sambands íslenskra sveitarfélaga að taka til athugunar á hvern hátt styrkja megi almennan tekjugrundvöll sveitarfélaga svo þau geti sinnt lögbundnu þjónustuhlutverki sínu á sómasamlegan hátt.

 

Hið sama er uppi á teningnum í ályktunum Eyþings, þar sem skorað er á ríkisstjórn Íslands að beita sér fyrir nauðsynlegum breytingum á tekjustofnum sveitarfélaga til að tryggja að þeir séu í samræmi við þau verkefni sem sveitarfélögunum eru falin og bent á mikilvægi þess að sveitarfélögin fái aukna hlutdeild í heildarskatttekjum samfélagsins.

 

Málefni fatlaðs fólks

 

Landshlutasamtökin hafa einnig lagt áherslu á að ríkið þurfi að auka framlag til málefna fatlaðs fólks. Í ályktun Fjórðungssambands Vestfirðinga (FV) er farið fram á endurmat á jöfnun vegna þjónustu við fatlað fólk:

 

Ef full fjármögnun málaflokksins verður ekki tryggð eru ekki aðrir möguleikar í stöðunni fyrir sveitarfélög á Vestfjörðum en að skila verkefninu til ríkisins.

 

Haustþing Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi ályktar á sama hátt og FV og skorar á Alþingi að hækka fjárveitingar til málefna fatlaðra, annað hvort í gegnum hækkuð framlög Jöfnunarsjóðs eða hærra útsvarshlutfall sveitarfélaga, þannig að sveitarfélögin geti sinnt þessu mikilvæga verkefni.

 

 

Þetta kemur fram á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga.

 

Sjá einnig:

Málefni fatlaðs fólks: Mikill vandi vegna fjárskorts (Reykhólavefurinn 8. okt. 2015)

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31