Málþing landeigenda um stjórnarskrárfrumvarpið
Landssamtök landeigenda á Íslandi gagnrýna hversu hart er að þeim sótt og hversu lagahyggja ráði stórum hlut, þar sem stöðugt sé verið að takmarka og ganga á rétt landeigenda. Hugmyndir um nýja stjórnarskrá séu þar meðtaldar. Samtökin eru ósátt við að grundvallarlög landsins eigi að afgreiða með hraði í stað málefnalegrar umræðu sem grundvallist á ítarlegu mati á áhrifum breytinganna.
Á árinu 2012 komu upp fjöldamörg mál sem snertu hagsmuni landeigenda og ljóst að hvergi má til slaka eigi landeigendur að halda réttindum sínum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum. Jafnframt hvetur stjórn þeirra landeigendur til að fjölmenna á aðalfund sem haldinn verður á Hótel Sögu á fimmtudag, 14. febrúar, og hefst kl. 13.
Í tengslum við aðalfundinn og í beinu framhaldi af honum verður haldið málþing þar sem ræddar verða breytingar á stjórnarskrá og áhrif þeirra á eignarrétt. Samtökin hafa gagnrýnt breytingarnar og telja ýmis ákvæði bæði óskýr og of mikið málskrúð falið í hinum nýju stjórnskipunarlögum, segir í tilkynningunni.
Umræðustjóri á málþinginu verður Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra, og frummælendur Karl Axelsson, hæstaréttarlögmaður, Ari Teitsson, varaformaður stjórnlagaráðs, og Reimar Pétursson, hæstaréttarlögmaður. Málþingið hefst kl. 16.
Stjórn Landssamtaka landeigenda skipa:
- Örn Bergsson, Hofi í Öræfum, formaður
- Guðný Sverrisdóttir, Grenivík
- Sigurður Jónsson, Eyvindartungu
- Óðinn Sigþórsson, Einarsnesi
- Gunnar Sæmundsson, Hrútatungu
► Landssamtök landeigenda á Íslandi