Tenglar

10. september 2015 |

Mannát, dauði og djöfull ...

Tröllin sem dagaði uppi / Jón Jónsson.
Tröllin sem dagaði uppi / Jón Jónsson.

Síðustu árin hafa verið vinsælar og vel sóttar þjóðtrúarkvöldvökur í Sauðfjársetrinu á Sævangi við Steingrímsfjörð og sú þriðja verður annað kvöld, föstudag. Yfirskriftin er hrikaleg: Mannát, dauði og djöfull. Telja má víst að fjallað verði um heldur óhugnanleg atriði í íslenskri þjóðtrú og þjóðsögum - á gamansaman hátt að þessu sinni. Það er Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðinemi við Háskóla Íslands sem heldur utan um kvöldvökuna og að venju verður á boðstólum yfirnáttúrulegt kaffi með kræsingum, sem og tónlistaratriði.

 

Þau sem flytja erindi á kvöldvökunni eru:

  • Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðinemi: Mannát á Íslandi
  • Björk Bjarnadóttir umhverfis- og þjóðfræðingur: „Skrattinn fór að skapa mann ...“
  • Jón Jónsson þjóðfræðingur: Þjóðtrú tengd dauðanum

Frítt verður inn á sýningar safnsins í tilefni dagsins fyrir þá sem vilja skoða þær sýningar sem eru uppi í Sævangi um þessar mundir:

  • Sauðfé í sögu þjóðar (fastasýning Sauðfjársetursins)
  • Brynjólfur Sæmundsson og störf héraðsráðunauta
  • Manstu? Ljósmyndir Tryggva Samúelssonar
  • Álagablettir

Skemmtunin óhugnanlega á Ströndum hefst kl. 20.30. Verð fyrir kvöldvöku og kaffi er 1.500 krónur.

 

Meðfylgjandi mynd tók Jón Jónsson af tröllunum í Drangavík í Kollafirði sem reyndu að grafa Vestfirði frá meginlandinu.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31