Tenglar

19. maí 2016 |

Mannfagnaður fyrir öll skilningarvit

List á Vestfjörðum, forsíða nýjasta heftisins.
List á Vestfjörðum, forsíða nýjasta heftisins.

Félag vestfirskra listamanna heldur Listamannaþing sitt í Sauðfjársetrinu í Sævangi við Steingrímsfjörð núna á laugardaginn kl. 13-15.30. Þingið hefur verið haldið á hverju ári síðustu árin en er núna á Ströndum í fyrsta sinn. Þetta er mannfagnaður fyrir öll skilningarvit; fróðleikur, skemmtan, fjöruferð og kaffidrykkja í hæfilegum hlutföllum. Allir eru hjartanlega velkomnir, listafólk, ferðaþjónar, fræðimenn, sveitarstjórnarmenn, allir íbúar Vestfjarða og annað gott fólk sem áhuga hefur.

 

Fyrir utan að hlýða á fróðleg erindi er annað ekki síður mikilvægt: Að þinggestir kynnist hverjir öðrum og bæti þannig skemmtilegu og skapandi fólki við tengslanetið.

 

Dagskrá Listamannaþings 2016 er þannig:

  • Ágúst Einarsson menningarhagfræðingur flytur erindi um hagræn áhrif lista.
  • Nína Ivanova leiðsögu- og listamaður fjallar um það hvernig sögu og menningu er miðlað til farþega skemmtiferðaskipa.
  • Dagrún Jónsdóttir þjóðfræðingur kynnir Náttúrubarnaskólann og tekur þinggesti í kennslustund í fjörunni.
  • Félag vestfirskra listamanna segir stuttlega frá sér og sínu starfi.
  • Verkefnið Álagablettir verður kynnt ásamt fleiru úr heimi þjóðfræðinnar.
  • Heimamenn verða með óvæntar uppákomur; fræðierindi og skemmtiatriði.

Fundarstjóri verður Jón Jónsson á Kirkjubóli, menningarfrömuður á heimavelli. Kaffiveitingar, kennslustund og allt annað verður ókeypis og veðrið á að vera gott.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31