Tenglar

30. júlí 2013 | vefstjori@reykholar.is

María Játvarðardóttir ráðin félagsmálastjóri

María Játvarðardóttir.
María Játvarðardóttir.

María Játvarðardóttir frá Miðjanesi í Reykhólasveit hefur verið ráðin félagsmálastjóri Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps. Hún er með meistaragráðu í fötlunarfræðum frá Háskóla Íslands og próf í félagsráðgjöf frá Nordland-háskólanum í Bodø í Noregi. Auk þess hefur hún lokið 15 eininga námi í stjórnun og rekstri í heilbrigðisþjónustu frá Endurmenntun Háskóla Íslands.

 

„Ég hlakka til að koma og þjóna þessum héruðum,“ segir María í samtali við vef Reykhólahrepps.

 

Hildur Jakobína Gísladóttir, sem gegnt hefur starfi félagsmálastjóra Stranda og Reykhólahrepps frá upphafi, lætur af starfi um mánaðamótin ágúst-september en verður félagsþjónustunni innan handar þar til María hefur störf.

 

María hefur starfað sem félagsráðgjafi hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins frá árinu 1994 og hefur sinnt stundakennslu við Háskóla Íslands á sínu fagsviði. Hún var félagsráðgjafi hjá Reykjavíkurborg á árunum 1986-1993 en var áður m.a. félagsráðgjafi á Örva, starfsþjálfunarstað fyrir fatlað fólk í Kópavogi.

 

Sveitarfélögin sem að félagsþjónustunni standa fagna komu Maríu í þetta mikilvæga starf. Jafnframt er Hildi Jakobínu þakkað fyrir vel unnið uppbyggingar- og mótunarstarf á upphafsárum Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31