Tenglar

25. febrúar 2014 | vefstjori@reykholar.is

Markaðsmálafundur á Hólmavík

Kort: lmi.is.
Kort: lmi.is.

Íslandsstofa og Markaðsstofa Vestfjarða boða til samtals aðila í ferðaþjónustu og tengdra hagsmunaaðila á fundum á nokkrum stöðum á Vestfjörðum. Þar er ætlunin að ræða möguleika á því að stilla enn frekar saman strengi í markaðssetningu landshluta og á landsvísu. Spurt verður spurninga á borð við þessar: Hvaða árangri viljum við ná í ferðaþjónustunni í framtíðinni og hvað er árangur í okkar huga? Hvernig getum við unnið betur saman og nýtt okkur þá markaðssetningu sem fer fram? Á Hólmavík verður fundurinn á Café Riis kl. 9-12 á morgun, miðvikudag, en hinir eru á Tálknafirði og Ísafirði.

 

Á fundunum verða Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu, og Díana Jóhannsdóttir, Markaðsstofu Vestfjarða, sem mun stýra fundunum. Skráning hjá Díönu í netfanginu travel@westfjords.is.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31