Tenglar

25. maí 2009 |

Markaðssetning - ertu að gera rétt?

Fræðslumiðstöðin og Atvest standa fyrir hagnýtu námskeiði fyrir aðila i ferðaþjónustu og aðra sem vilja finna góðar leiðir til að koma fyrirtæki sínu á framfæri. Námskeiðið verður á morgun, þriðjudaginn 26. maí, og stendur frá kl. 17 til 21. Kennt verður gegnum fjarfundabúnað frá Ísafirði til Hólmavíkur, Patreksfjarðar og Reykhóla. Áhersla er lögð á heimasíður, bæklinga og Facebook. Farið verður í grunnatriði í markaðssetningu og hvernig best er að nýta þessa miðla. Tekin verða dæmi um hvað er vel gert og hvað er síður að virka og þátttakendur aðstoðaðir við að greina sínar áherslur í markaðsmálum. Námskeiðið hentar jafnt þeim sem eru að byrjendur eða lengra komnir í markaðssteningu fyrirtækis.

 

Kennari er Jón Páll Hreinsson og verð einungis kr 5.000.

 

Kennsla fer fram hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða á Ísafirði og er skráning á vefnum www.frmst.is.

 

Nánari upplýsingar gefur Ásgerður hjá Atvest í síma 450 3053 eða Dagný hjá FRMST í síma 456 5077.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31