Tenglar

18. mars 2013 | vefstjori@reykholar.is

Markaðsstofa Vestfjarða væntanlega lögð niður

Vinnuhópur á vegum stjórnar Markaðsstofu Vestfjarða ses. og Ferðamálasamtaka Vestfjarða hefur á síðustu vikum rætt saman um slit á starfsemi Markaðsstofu Vestfjarða og fyrirkomulag markaðsmála í framhaldi af því. Unnið er að málinu í samræmi við samþykkt 57. Fjórðungsþings Vestfirðinga um sameiningu starfsemi Markaðsstofu Vestfjarða og Fjórðungssambands Vestfirðinga.

 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga. Þar segir ennfremur:

 

Drög að samkomulagi eru nú til umfjöllunar hjá eigendum Markaðsstofu Vestfjarða og er að vænta niðurstöðu í apríl nk. en eigendur Markaðsstofu Vestfjarða eru Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða, Ferðamálasamtök Vestfjarða og Fjórðungssamband Vestfirðinga. Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga hefur samþykkt í millitíðinni að hafa umsjón með starfsemi Markaðsstofu og hefur Díönu Jóhannsdóttur, verkefnisstjóra hjá Fjórðungssambandinu, verið falið þetta verkefni af þess hálfu í samráði við stjórn og framkvæmdastjóra.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Jl 2024 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31