Tenglar

14. nóvember 2015 |

Markaður í þágu ferðasjóðs unglingadeildarinnar

Blómlegur flóamarkaður / Wikipedia.
Blómlegur flóamarkaður / Wikipedia.

Flóamarkaður verður í borðsal Reykhólaskóla kl. 16-19 á þriðjudaginn, 17. nóvember. Þeir sem vilja geta fengið söluborð sem kosta kr. 500. Ágóðinn af markaðinum rennur í ferðasjóð unglingadeildar skólans. Hvernig væri að kíkja í geymsluna eða bílskúrinn eða inn í skápana? Pantið borð sem fyrst hjá Höllu Valda í síma 847 2539.

 

Orðið flóamarkaður á rætur að rekja til markaða með notaða muni suður í Evrópu á miðöldum. Þá vildi það henda að flær og önnur kvikindi fylgdu fatnaði sem „kaupbætir“, en það er víst löngu liðin tíð. Myndin sem hér fylgir er frá flóamarkaði í Dresden í Þýskalandi (Wikipedia / Stefan Kühn).

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Jl 2024 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31