3. ágúst 2011 |
Markaður og kynning á Ólafsdalshátíðinni
Á Ólafsdalshátíðinni á sunnudag er gert ráð fyrir að vera með markað þar sem fólki verður gefinn kostur á að selja eða kynna vörur sínar. Lögð er áhersla á að þeir sem taka þátt í markaðnum bjóði matvæli úr heimafengnu hráefni og vandað handverk eða listmuni. Þeim sem vilja vera með vörur til sölu eða kynningar á Ólafsdalsmarkaðnum er bent á að hafa samband við Höllu í netfanginu hallasteinolfs@gmail.com eða í síma 893 3211.
Dagskrá Ólafsdalshátíðarinnar 2011