Tenglar

20. maí 2016 |

Matarhugmynd í maganum?

Drykkurinn Íslandus.
Drykkurinn Íslandus.

Matís stendur fyrir vinnufundi á fimmtudag þar sem farið verður gegnum praktíska þætti í þróun matvöru og hvernig vel skipulögð matarhönnun getur gert vöru einstaka og eftirsóknarverða, eins og segir í tilkynningu. Allar hugmyndir þar sem matur er helsta viðfangsefnið eru velkomnar. Þetta getur snúist um framleiðslu, framreiðslu eða matarupplifun. „Að þessu sinni höfum við sérstaklega mikinn áhuga á sjávartengdu hráefni en að sjálfsögðu eru allir með góðar matarhugmyndir velkomnir.“

 

Stjórnendur fundarins eru Guðjón Þorkelsson matvælafræðingur, Óli Þór Hilmarsson kjötiðnaðarmeistari og matarhönnuðirnir Brynhildur Pálsdóttir og Kristín María Sigþórsdóttir.

 

Í lok fundarins stendur þátttakendum til boða að sækja um stuðning til að vinna áfram með hugmynd sína og munu fjórar til sex hugmyndir verða valdar. Stuðningurinn er að andvirði ein milljón króna á hvert verkefni og felst hann í aðstoð frá sérfræðingum Matís og matarhönnuðunum Brynhildi og Kristínu Maríu.

 

Stefnt skal að því að verkefnin verði komin af teikniborðinu og í framleiðslu eða lokaundirbúning fyrir 1. nóvember.

 

Vinnufundurinn verður fimmtudaginn 26. maí kl. 10 til 14 í húsakynnum Matís að Vínlandsleið 12 í Reykjavík. Léttur hádegisverður í boði Matís.

 

Tilkynning um þátttöku sendist í netfangið matarhugmynd@matis.is. Nauðsynlegt er að heiti hugmyndar og örstutt lýsing verkefnis komi fram ásamt fullu nafni þátttakenda.

 

Varðandi myndina sem fylgdi tilkynningunni frá Matís: Íslandus er „bragðgóður íslenskur drykkur úr mysu, handtíndum berjum og villtum jurtum“.

 

Matís

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31