Tenglar

28. nóvember 2008 |

Matartengd ferðaþjónusta – nafnasamkeppni

Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða ásamt aðilum frá ferðaþjónustunni, verslunum, veitingahúsum, framleiðendum og bændum hefur að undanförnu unnið að verkefni er snýr að matvælaframleiðslu í fjórðungnum og matartengdri ferðaþjónustu. Eitt af markmiðum verkefnisins er að gera vestfirsk matvæli sýnileg og aðgengileg fyrir bæði heimamenn og ferðamenn. Hannað verður vörumerki sem mun einkenna vestfiskar afurðir og mun verða notað í allri kynningu og markaðssetningu. Svipuð verkefni hafa áður verið unnin hérlendis. Dæmi um slíkt er Matarkistan Skagafjörður.

Verkefnið vantar nú nafn og hefur því verið ákveðið að efna til nafnasamkeppni. Nafnið þarf að hafa skírskotun til svæðisins og að sjálfsögðu til matar. Eins og áður segir verður það síðan notað í kynningarefni fyrir verkefnið og allri umræðu sem því fylgir.

Hugmyndir skulu sendast á netfangið atvest@atvest.is eða í síma 450 3000 fyrir mánudaginn 8. desember.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31