25. júlí 2013 | vefstjori@reykholar.is
Matseðillinn á kvöldskemmtun Reykhóladaga
Matseðillinn á kvöldskemmtun Reykhóladaganna í íþróttahúsinu á laugardagskvöld liggur fyrir. Minnt skal á það, að talsverðu máli skiptir fyrir fólkið sem annast matinn að hafa með fyrra fallinu einhverja hugmynd um væntanlegan fjölda. Forsala miða er í Reykhólaskóla í dag, fimmtudag, kl. 12-13 og 16-19. Líka má utan þess tíma hringja í síma 691 6960 og mæla sér mót til að fá miða. Verð á kvöldskemmtun og ball er kr. 5.000 í forsölu en kr. 5.500 við innganginn.
Matseðillinn er þannig:
Aðalréttir og meðlæti
- Ristað chili- og hvítlauksmarínerað lamb með villisveppasósu
- Steiktur steinbítur og sinnepssósa
- Koli og kaperssmjör
- Kartöflusalat með papriku, rauðlauk og ólífum
- Ferskt salat og graslauksdressing
- Ristað rótargrænmeti
- Íslenskt bygg og blóðberg
- Tómatsalat
Eftirréttir
- Frönsk súkkulaðikaka
- Aðalbláberja-skyrmús