Tenglar

1. mars 2009 |

Matthías Sævar gefur kost á sér í 3.-6. sæti fyrir VG

Matthías Sævar Lýðsson
Matthías Sævar Lýðsson

Öllum lögmætum aðferðum verður því að beita, til að endurheimta þau efnislegu verðmæti sem voru höfð af almenningi síðustu árin í samfélagi þar sem gróðahyggja og græðgi fékk að vaxa og dafna óátalið af stjórnvöldum.

Ég vil varðveita og efla innri samfélagsgæði. Þar á ég m.a. við:

  • Menntun og jafnt aðgengi að henni óháð búsetu og efnahag.
  • Gæði menntunar í því sköpunarstarfi sem nú er unnið í vaxandi háskólum og setrum víða um land verði tryggð með samstarfssamningum milli skóla.
  • Íþrótta- og félagstarf hjá ungum og öldnum.
  • Standa vörð um tónlistarskólana og styðja við leiklistarstarf, ekki síst hjá hugaleikhópum.

Ég vil búa bændum þá framtíðarsýn að:

  • Þeir fái sanngjarnt verð fyrir vinnu sína og geti búið börnum sínum sömu lífsgæði og aðrir þegnar.
  • Eignarréttur þeirra verði virtur og framkvæmd þjóðlendulagana sé með þeim hætti að stjórnvöld hætti að svívirða eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar.
  • Stuðningur við þá þróttmiklu nýsköpun sem er í sveitum verði efldur, ekki síst með ráðgjöf og leiðbeiningum.

 

Ég vil koma böndum á þann óskapnað sem veðsetning og verslun með kvóta hefur vakið upp. Það verður að gera án þess að kippa fótunum undan þeim útgerðum  og fiskvinnslum sem skapa verðmæti og halda uppi atvinnu, stundum að því er virðist af hugsjón frekar en gróðavon. Þetta er erfitt verk en verður að takast. 

 

Ég vil að náttúrugæði og auðlindir séu nýtt með þeim hætti að ekki verði  gengið á möguleika afkomenda okkar til að nýta og njóta þeirra sömu gæða.  Lögfest verði að við alla lagasetningu og meiriháttar framkvæmdir á vegum ríkis og sveitarfélaga, verði metin að jöfnu áhrif á efnahag, samfélag og  náttúru. Ég vil þetta og ég vil ótalmargt fleira. En fyrst og fremst vil ég búa í samfélagi skapandi hugsunar, heiðarleika, jöfnuðar, náttúruverndar, samvinnu og lífsgleði.

Ég er 51 árs, bóndi í Húsavík á Ströndum og hef unnið ýmislegt samhliða  búskap s.s. sem svæðisleiðsögumaður, lögreglumaður, félagsmálakennari, starfsmaður sláturhúss og fleira. Er og hef verið virkur í félags- og atvinnumálum og hef setið m.a. í stjórn UMFÍ, er einn stofnenda og stjórnarmanna Galdrasýningarinnar og Sauðfjárseturs á Ströndum. Einnig í stjórnum Kaupfélags Steingrímsfjarðar og Hólmadrangs (rækjuvinnslu). Ég er kvæntur Hafdísi Sturlaugsdóttur bónda og náttúrufræðing og eigum þrjú börn.

 

Húsavík 24. febrúar, á Matthíasarmessu.

 

Matthías Sævar Lýðsson

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31