Tenglar

16. desember 2008 |

Matur úr héraði - verkefni í svæðisbundinni matargerð

Impra og Ferðamálastofa óska eftir umsóknum um þátttöku í Krásum, sem er fræðslu- og þróunarverkefni í svæðisbundinni matargerð. Í verkefninu verður boðið upp á fræðslu auk faglegs og fjárhagslegs stuðnings við þróun og sölu matvæla. Þátttaka er opin einstaklingum og litlum fyrirtækjum á landsbyggðinni, svo og samstarfshópum einstaklinga og lítilla fyrirtækja, sem óska eftir að vinna saman við þróun á matvörum. Matvörurnar þurfa að vera ákveðin nýjung en hafa um leið sterka skírskotun til viðkomandi svæða eða menningar. Verkefnin þurfa einnig að vera í sterkum tengslum við ferðaþjónustu, t.d. með sölu beint til ferðamanna, á sveitahótelum og gististöðum eða á veitingahúsum á landsbyggðinni.

 

Umsóknarfrestur er til 12. janúar 2009.

 

__________________________________

 

Krásir - matur úr héraði - þróunarverkefni á sviði svæðisbundinnar matargerðar

 

Tilgangur verkefnisins er að styrkja þróun í svæðisbundinni matargerð og efla ferðaþjónustu með því að framleiða og selja matvörur sem byggja á hráefni, sögu og þekkingu á ákveðnum svæðum. Ennfremur að auka samstarf milli fyrirtækja í ferðaþjónustu og lítilla fyrirtækja sem framleiða matvörur og auðvelda þeim sameiginlega markaðssetningu á svæðinu. Þeir sem taka þátt í verkefninu taka þátt í fræðslu um í þróun, vinnslu og meðferð matvæla og fá auk þess fjárhagslegan og faglegan stuðning við þróun á nýjum afurðum. Með verkefninu er verið að auka þekkingu á gæðum og faglegri vinnu við þróun nýjum matvörum.

 

Markmið

 

- Að auka framboð á matvörum sem hafa sterka skírskotun til svæðis eða sögu og menningar á viðkomandi svæði.

- Að koma nýrri vöru á markað.

- Að vinna að faglegum úrlausnum við þróun á viðkomandi vöru.

- Að verkefnin skili fyrirtækjunum það miklum ávinningi, að kostnaðurinn við vöruþróunina skili sér til baka innan 2-3 ára frá því að sala hefst.

- Að auka þekkingu á þróun, framleiðslu og markaðssetningu.

- Að auka og efla samstarf milli fyrirtækja í ferðaþjónustu og matvælaframleiðslu.

 

Framkvæmd

 

Verkefnið hefst með tveggja daga námskeiði þar sem þátttakendur fá fræðslu um þróun, vinnslu, meðferð og öryggi matvæla. Kennt verður í janúar 2009 á 3-4 stöðum á landinu, en staðirnir verða valdir með hliðsjón af búsetu þátttakenda. Kennarar koma frá Matís, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra og Hólaskóla - Háskólanum á Hólum. Að námskeiðinu loknu hefst hin eiginlega þróunarvinna, þar sem þátttakendur munu vinna að sínum verkefnum með aðstoð frá Impru auk sérfræðinga á tilteknum sviðum. Þjónusta Impru á Nýsköpunarmiðstöð er án endurgjalds, en styrknum er ætlað að standa undir hluta af öðrum kostnaði, t.d. ráðgjöf sérfræðinga, prófunum, mælingum eða öðrum þáttum við þróunina.

 

Forsendur

 

Forsendur þess að verkefni geti fengið stuðning eru m.a. eftirfarandi:

- Einhver nýjung, þróun eða nýbreytni frá þeim vörum sem eru í boði í dag.

- Tenging við ferðaþjónustu á svæðinu.

- Sala sé líkleg til að skila þróunarkostnaði til baka á innan við 2-3 árum.

- Verkefnið raski ekki samkeppni á viðkomandi svæði.

 

Umsóknarform er að finna hér (neðst á síðunni). Í umsóknum þurfa að koma fram upplýsingar um umsækjendur og verkefnishugmyndir þeirra, nýnæmi, tengsl við ferðaþjónustu og markað. Nánari upplýsingar veitir Sigurður Steingrímsson verkefnisstjóri í tölvupósti og í síma 460 7972.

 

> Impra

> Ferðamálastofa

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31