Tenglar

24. nóvember 2008 |

Menningarráð: Arnarsetrið fær myndarlegan stuðning

Mynd úr vefmyndavél Arnarsetursins á liðnu sumri.
Mynd úr vefmyndavél Arnarsetursins á liðnu sumri.
1 af 4

Við síðari úthlutun þessa árs á styrkjum Menningarráðs Vestfjarða hlaut Arnarsetur Íslands í Reykhólasveit kr. 700.000 til hönnunar og undirbúnings sýningar. Af öðrum styrkjum má nefna, að Fornleifafélag Barðstrendinga og Dalamanna fékk kr. 100.000 til verkefnisins Kuml í Berufirði - rafræn miðlun. Styrkirnir voru afhentir við hátíðlega athöfn í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði á föstudag. Alls voru veittir 52 styrkir að upphæð samtals 17,4 milljónir og voru einstakir verkefnastyrkir á bilinu frá 50 þúsund krónum og upp í eina. Nokkrir aðilar fengu styrki til tveggja verkefna.

 

Á vef Menningarráðs segir, að styrkirnir hafi farið „til fjölbreyttra verkefna sem sýna glöggt þann kraft og frumkvæði sem býr í vestfirsku menningarlífi, en margvísleg útgáfuverkefni voru þó áberandi við úthlutun að þessu sinni, enda var lögð sérstök áhersla á að styrkja slík verkefni við þessa úthlutun. Átti það bæði við um útgáfu bóka og tónlistar."

 

Næst verður auglýst eftir styrkumsóknum snemma á nýju ári. Samtals hefur Menningarráð Vestfjarða nú úthlutað 55 milljónum til 151 verkefnis við þrjár úthlutanir.


Myndir nr. 2-4 eru af vef Menningarráðs Vestfjarða.
 

Listi yfir alla styrkina við síðari úthlutun ársins 2008:

 

Kr. 1.200.000

Strandagaldur ses (2 verkefni)

- Heimildamynd um galdrafárið í Trékyllisvík (1.000.000)

- Barnarímur Ásu Ketilsdóttur (200.000)

 

Kr. 1.000.000

Alþýðusamband Vestfjarða: Saga verkalýðshreyfingar á Vestfjörðum 1906-2006

Sögunefnd byggðasögu Strandamanna: Strandabókin, byggðasaga

 

Kr. 700.000

Útgáfufélag Búnaðarsambands Vestfjarða: Vestfjarðarit IV (Vestur-Barðastrandarsýsla)

Aldrei fór ég suður, félag: Aldrei fór ég suður

Arnarsetur Íslands: Arnarsetur - hönnun og undirbúningur sýningar

Kómedíuleikhúsið og Act Alone leiklistarhátíð (2 verkefni)

- Auðun og ísbjörninn - leiksýning (400.000)

- Íslenskir einleikir - Söguleg ferðasýning (300.000)

 

Kr. 500.000

Íþróttafélagið Höfrungur, Þingeyri: Söngleikurinn Dragedukken

Byggðasafn Vestfjarða: Saltfiskuppskriftir og hljómdiskur - saga og menning

Menningarmiðstöðin Edinborg: Listviðburðir Menningarmiðstöðvarinnar júlí-desember 2008

Snjáfjallasetur (2 verkefni)

- Útgáfa á kveðskap frá Snæfjalla- og Grunnavíkurhreppum úr segulbandasafni Árnastofnunar (200.000)

- Sýning um skólahald í heimangönguskólanum að Lyngholti á Snæfjallaströnd (300.000)

Sauðfjársetur á Ströndum (2 verkefni)
- Líf og starf ráðunautar - sérsýning um Brynjólf Sæmundsson (300.000)

- Útgáfa fræðsluhefta um sauðfjárbúskap og bændamenningu (200.000)

 

Kr. 400.000

Sjóræningjahúsið: Sögur úr grjóti

Vestfirðir á miðöldum: Vatnsfjarðarsaga

Leikfélagið Baldur Bíldudal: Bíldudals bacalao - sumarleikhús

Óstofnað félag um Sögusetur og söguslóð Spánverjavíganna 1615: Spánverjavígin 1615. Sögusetur - söguslóð

Kvenfélagið Ósk: Safn sem hýsir sögu kvennamenningar, lista og handverks

Brúðuleikhúsið Dúkkukerran: Leikbrúðusýningin Þjóðbrók

Félag áhugamanna um skrímslasetur: Skrímslasögur lifna við

Tónlistarfélag Ísafjarðar: Afmælistónleikaröð Tónlistarfélags Ísafjarðar 2008-09

EagleFjord ehf. og Gallerie Dynjandi (2 verkefni)

- Bíldudalssteinn (200.000)

- Vestfirðir að vetri (200.000)

 

Kr. 350.000

Bjarni Ómar Haraldsson (2 verkefni)

- Fyrirheit, hljómplötuútgáfa (250.000)

- Útgáfutónleikar og tónleikaröð (100.000)

 

Kr. 300.000

Vesturbyggð: Merkingar eyðibýla í Vesturbyggð

Þjóðfræðistofa: Leitin að Gísla - annar áfangi heimildamyndar

Passport Kvikmyndir: Norð Vestur

Listaskóli Rögnvaldar Ólafssonar: Námskeið - leiklist og söngleikur

Sögufélag Barðastrandarsýslu: Endurútgáfa Árbókar Barðastrandarsýslu

Félagið Hús og fólk: Á mölinni: Textar og teikningar

 

Kr. 250.000

Litli leikklúbburinn: Úti er alltaf að snjóa - Leik- og söngdagskrá

Þórarinn Hannesson: Þorpið - ljóðaleikur

Birgir Örn Sigurjónsson: BIX - hljómdiskur

Lilja Sigurðardóttir: Hver er ég? - Útgáfa á geisladiski með frumsömdum lögum og textum

Þröstur Jóhannesson: Vorið góða

Kvennakórinn Norðurljós: Útgáfa hljómdisks með Kvennakórnum Norðurljósum

Kristján G. Jóhannsson: Sýning um skipasmíðar Marsellíusar Bernharðssonar

Guðfinna M. Hreiðarsdóttir: Útgáfa á úrvali ljóða skáldkonunnar Höllu Eyjólfsdóttur frá Laugabóli

Framför - Styrktarsjóður skíðamanna á Ísafirði: Ísfirskir Ólympíufarar

 

Kr. 200.000

Þjóðbúningafélag Vestfjarða: Dagatal Þjóðbúningafélags Vestfjarða

 

Kr. 100.000

Ómar Smári Kristinsson: Teikningar af vestfirskum byggðum - útgáfa handgerðra dagatala

Fornleifafélag Barðstrendinga og Dalamanna: Kuml í Berufirði - rafræn miðlun

Thorp ehf: Hnyðjur - ljóðabók Þorgeirs Sigurðssonar frá Stóra-Fjarðarhorni

Lisbet Harðardóttir: Búrið - listagallerí

Óbeisluð fegurð: Óbeilsuð fegurð, útgáfa heimildarmyndar á DVD

Hollvinafélag Gvendarlaugar hins góða: Gvendarlaug hins góða - Byggingarsaga sundlauga í Bjarnarfirði og saga Sundfélagsins Grettis

 

Kr. 50.000

Skiptá, áhugamannafélag um menningu og listir: Tónleikahald á Vestfjörðum

Laufey Eyþórsdóttir: Myndlistarsýningar í Ísafjarðarbæ

  

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31