10. mars 2012 |
Menningarráð: Kynning og kennsla á Reykhólum
Eins og hér var greint frá mun Menningarráð Vestfjarða nú í fyrsta skipti úthluta stofn- og rekstrarstyrkjum. Líka auglýsir ráðið eftir umsóknum um hefðbundna verkefnastyrki, sem aðeins verður úthlutað einu sinni á þessu ári. Af þessu tilefni heldur ráðið kynningarfundi ásamt stuttu námskeiði um gerð umsókna víða um Vestfirði. Þessar kynningar og námskeið verða eins og hér segir á sunnanverðum Vestfjörðum og Ströndum:
- Malarkaffi, Drangsnesi - sunnudag 11. mars kl. 17
- Reykhólaskóla, Reykhólum - mánudag 12. mars kl. 17
- Sjóræningjahúsinu, Patró - miðvikudag 14. mars kl. 17
- Grunnskólanum Tálknafirði - miðvikudag 14. mars kl. 20
- Skrímslasetrinu Bíldudal - fimmtudag 15. mars kl. 17
- Rósubúð, Höfðagötu 9, Hólmavík - föstudag 16. mars kl. 17
Allir eru velkomnir. Ekki þarf að skrá sig sérstaklega og ekki þarf að borga fyrir þátttöku.