Tenglar

19. febrúar 2013 | vefstjori@reykholar.is

Menningarráð: Umsóknarfrestur rennur út á föstudag

Menningarráð Vestfjarða minnir á, að umsóknarfrestur til ráðsins rennur út núna á föstudag, 22. febrúar. Hægt er að skila inn umsóknum sem viðhengi í tölvupósti eða gegnum vefsíðuna www.vestfirskmenning.is til miðnættis þann dag. Á vefsíðu ráðsins má einnig nálgast umsóknareyðublöð og allar leiðbeiningar. Hægt er að sækja um styrki í tveimur flokkum, bæði til afmarkaðra menningarverkefna og líka um stofn- og rekstrarstyrki til menningarstofnana í fjórðungnum.

 

Starfsemi Menningarráðsins byggist á samningi milli ríkisins og sveitarfélaga á Vestfjörðum og er tilgangur styrkjanna að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Vestfjörðum. Umsóknir og verkefni hverju sinni eru borin saman á samkeppnisgrundvelli.

 

STOFN- OG REKSTRARSTYRKIR

Menningarráð Vestfjarða auglýsir nú í annað skipti eftir umsóknum um stofn- og rekstrarstyrki. Umsækjendur þurfa að skila ítarlegum upplýsingum um starfsemi sína. Ákveðið hefur verið að við úthlutun stofn- og rekstrarstyrkja 2013 verði horft sérstaklega til umsækjenda sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:

  • Stuðla að því að efla menningarstarfsemi á sviði lista, safna og/eða menningararfs.
  • Stuðla að nýsköpun í menningarstarfsemi.
  • Styðja við menningarstarfsemi sem fjölgar atvinnutækifærum á svæðinu.

 

VERKEFNASTYRKIR

Jafnframt er auglýst eftir umsóknum um verkefnastyrki til afmarkaðra menningarverkefna, en vakin er athygli á að á árinu 2013 verður aðeins auglýst eftir verkefnastyrkjum í þetta eina skipti. Fylgiskjöl með umsóknum um verkefnastyrki eru afþökkuð, allt sem skiptir máli á að koma fram í umsókninni sjálfri. Menningarráð Vestfjarða hefur ákveðið að við úthlutun verkefnastyrkja 2013 verði horft sérstaklega til verkefna sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:

  • Verkefni sem efla samstarf á sviði menningarmála á Vestfjörðum.
  • Verkefni sem stuðla að nýsköpun og fjölbreytni í menningartengdum verkefnum.
  • Verkefni sem fjölga atvinnutækifærum á sviði menningar.
  • Menningarstarfsemi sem styður við ferðaþjónustu.
  • Verkefni sem stuðla að þátttöku barna og unglinga í lista- og menningarlífi.

 

Umsóknarfrestur um styrki er til og með 22. febrúar 2013.

 

Allar nánari upplýsingar gefur Jón Jónsson menningarfulltrúi Vestfjarða í síma 891-7372 eða í netfanginu menning@vestfirdir.is.

  

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31