Tenglar

29. nóvember 2011 |

Menningarráð Vestfjarða: 37 verkefni fá framlög

Handaverk Samúels í Selárdal.
Handaverk Samúels í Selárdal.

Ekkert verkefni í Reykhólahreppi fékk styrk við síðari úthlutun þessa árs hjá Menningarráði Vestfjarða, sem kunngerð var í gær. Að þessu sinni eru veitt framlög til 37 verkefna, samtals kr. 12.350.000. „Alls bárust 85 umsóknir og eins og venjulega var í þeim hópi mikill fjöldi góðra umsókna og spennandi verkefna. Menningarráð hefði gjarnan viljað veita fleiri styrki og hærri, en því miður eru fjármunir takmarkaðir. Því þarf að hafna ýmsum áhugaverðum verkefnum og svo fá margir styrkþegar nokkru lægri upphæðir en þeir óskuðu eftir“, segir í tilkynningu frá menningarfulltrúa Vestfjarða, Jóni Jónssyni á Kirkjubóli við Steingrímsfjörð.

 

„Úthlutanir ráðsins byggjast á úthlutunarreglum sem samþykktar eru hverju sinni. Ánægjulegt er að sjá hversu mörg verkefni sem fá styrki nú snúast að hluta eða öllu leyti um vinnu við listsköpun með börnum og ungmennum. Menningarstarfsemi með þessum aldurshópi var einmitt einn af þeim áhersluþáttum sem horft var sérstaklega til að þessu sinni“, segir Jón.

 

Samtals hefur Menningarráð Vestfjarða gefið vilyrði fyrir 27 milljónum í styrki til menningarverkefna á Vestfjörðum á árinu 2011. Ráðið þakkar kærlega fyrir allar umsóknir sem bárust og óskar umsækjendum velfarnaðar í verkefnum sínum. Næst verður auglýst eftir umsóknum snemma á nýju ári.

 

Í Menningarráði Vestfjarða sitja Leifur Ragnar Jónsson formaður, Gerður Eðvarsdóttir varaformaður, Arnar S. Jónsson, Jóna Benediktsdóttir og Katrín Gunnarsdóttir. Ráðið sér alfarið um að fjalla um og afgreiða umsóknir.

 

 

Styrkir til menningarverkefna við 2. úthlutun 2011

 

Kr. 1.200.000

  • 10. tónlistarhátíðin Við Djúpið - nýjar áherslur (Við Djúpið, félag)

 

Kr. 800.000

  • Aldrei fór ég suður - tónlistarhátíð á Ísafirði páskana 2012 (Aldrei fór ég suður, félag)

 

Kr. 600.000

  • Skáldið á Þröm (Kómedíuleikhúsið)
  • Frásagnasafnið (Þjóðfræðistofa og Skaftfell - menningarmiðstöð Austurlands)
  • Vestfirskar þjóðsögur í nútímabúning - söngleikur fyrir börn (Vestfirska skemmtifélagið)

 

Kr. 500.000

  • Baunagrasið - Aqustic tónlistarhátíð á Bíldudal (Gísli Ægir Ágústsson)
  • Bjálfansbarnið og bræður hans (Kómedíuleikhúsið)

 

Kr. 400.000

  • Fjörulalli og hafmaður í fullri stærð (Félag áhugamanna um skrímslasetur)
  • Kynnumst tónlistararfinum (Tónlistarskóli Ísafjarðar)
  • Smiðjan. Listsköpun og sjálfstyrking unglinga (Matthildur Helgadóttir Jónudóttir og Auður Ólafsdóttir)
  • WAF - Westfjord Art Fest (Litli Vísir ehf.)
  • Smalaraunir (Sauðfjársetur á Ströndum)

 

Kr. 300.000

  • Fjallkonan frá Dýrafirði (Sögumiðlun ehf.)
  • Sumarleikhús barnanna Vestfjörðum (Þröstur Leó Gunnarsson)
  • Farandmyndahátíðin - Flækja (Þjóðfræðistofa)
  • Hjólabókin: Vestfirðir (Ómar Smári Kristinsson)
  • Sjóræningjaskólinn (Sjóræningjahúsið)
  • Tíu þjónar og einn í sal (Leikfélag Patreksfjarðar)
  • Húmorsþingið - Vetrarhátíð á Ströndum (Þjóðfræðistofa)
  • Sambahátíð - listahátíð til styrktar listasafni Samúels Jónssonar að Brautarholti í Selárdal (Félag um endurreisn listasafns Samúels Jónssonar í Selárdal)

 

Kr. 250.000

  • Martinus Simson, yfirlitssýning á ljósmyndum (Sigurður Gunnarsson)

 

Kr. 200.000

  • Menningarminjakort fyrir Skálavík (Náttúrustofa Vestfjarða)
  • Rafræn myndlistarsýning Muses.is á Ísafirði (Rakel Sævarsdóttir)
  • Heklumót 21.-23. apríl 2012 (Karlakórinn Ernir)
  • Ungmenni á Vestfjörðum (Einar Bragi Guðmundsson)
  • Saga í myndum - Sögusýning í Einarshúsi (Einarshúsið ehf.)
  • Hvítabjörn í heimsókn (Melrakkasetur Íslands)
  • Óperettudrottningin Sigrún Magnúsdóttir - sögusýning (Ópera Vestfjarða)
  • Vestfirska leikárið 2011-2012 (Act Alone)
  • Allt á kafi (Tómstunda-, íþrótta- og menningarmálanefnd Strandabyggðar)
  • Tónleikaferð í Strandasýslu og á Reykhóla (Kvennakór Ísafjarðar)
  • Vestfirsk ljóð með augum myndlistarmannsins (Marsibil G. Kristjánsdóttir)
  • Skelin - Menningardagskrá veturinn 2011-2012 (Þjóðfræðistofa)
  • Abbanana - geisladiskur með lögum og textum eftir Ástvald og Hafliða frá Bíldudal (Leikfélagið Baldur, Bíldudal)

 

Kr. 100.000

  • Sjómannslíf - Ljósmyndasýning (Eyþór Jóvinsson)
  • Falinn kvikmyndafjársjóður á Vestfjörðum (Eysteinn Guðni Guðnason)
  • Sumartónleikar í kirkjum á Vestfjörðum (Ólafur Gestur Rafnsson)

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31