Tenglar

30. maí 2011 |

Menningarráð Vestfjarða: Nærri hundrað umsóknir

Frá seinni úthlutun menningarstyrkja ársins 2010. Ljósm. Brian Berg.
Frá seinni úthlutun menningarstyrkja ársins 2010. Ljósm. Brian Berg.
Við fyrri úthlutun 2011 hlutu 34 verkefni styrki frá Menningarráði Vestfjarða, samtals kr. 14.650.000. Umsóknir sem bárust voru 97 og segir í tilkynningu að úr vöndu hafi verið að ráða því að bæði hafi umsóknirnar verið óvenjulega margar og vandaðar. „Hefði stjórn Menningarráðsins gjarnan viljað hafa meira fjármagn til ráðstöfunar að þessu sinni, bæði til að styrkja fleiri góð verkefni og einnig til að upphæðir til einstakra verkefna gætu verið hærri.“

 

Sú breyting er gerð við úthlutun að þessu sinni, að niðurstaðan er kynnt með fréttatilkynningu en ekki verður sérstök úthlutunarathöfn eins og verið hefur undanfarin ár. Er það gert í sparnaðarskyni.

 

Að venju eru ekki gefnar upplýsingar um þau verkefni sem fá ekki styrk. Menningarráðið þakkar kærlega fyrir allar þær umsóknir sem bárust og óskar umsækjendum velfarnaðar í verkefnum sínum. Aftur verður auglýst eftir umsóknum um styrki í haust.

 

Í stjórn Menningarráðs Vestfjarða við vinnuna að úthlutunarferlinu sátu Leifur Ragnar Jónsson formaður, Gerður Eðvarsdóttir varaformaður, Jóna Benediktsdóttir, Katrín Gunnarsdóttir og Ásta Sjöfn Kristjánsdóttir. Menningarfulltrúi Vestfjarða og starfsmaður ráðsins er og hefur verið frá upphafi Jón Jónsson þjóðfræðingur og ferðaþjónn á Kirkjubóli við Steingrímsfjörð.

 

 

Framlög Menningarráðs Vestfjarða við fyrri úthlutun ársins 2011

 

Kr. 1.000.000

  • Staparnir - ljósa- og ljóðlistaverk (Haukur Már Sigurðarson)
  • Aldrei fór ég suður - tónlistarhátíð (Aldrei fór ég suður, félag)

 

Kr. 800.000

  • Leiklistarnámskeið og götuleikhús (Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur)

 

Kr. 750.000

  • Útgáfa á kynningarblaðinu Vestfirsk menning (Félag vestfirskra listamanna)
  • Tónlistarhátíðin Við Djúpið 2011 (Við Djúpið félag)
  • Act Alone 2011 (Act Alone)
  • Skjaldborg 2011 (Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildamynda)

 

Kr. 700.000

  • Viðburðir í Menningarmiðstöðinni Edinborg (Menningarmiðstöðin Edinborg)

 

Kr. 500.000

  • Dellusafnið (Jón Svanberg Hjartarson)
  • Roð og rekaviður (Listaskóli Rögnvaldar Ólafssonar)
  • Minningar (Þjóðfræðistofa)

 

Kr. 400.000

  • Fransmenn á Vestfjörðum (Minjasafn Egils Ólafssonar á Hnjóti)
  • Báta- og hlunnindanytjar (Æðarvé)
  • Ópera Vestfjarða - stofn- og undirbúningsstyrkur, námskeið og tónleikar (Ópera Vestfjarða)
  • Jón Sigurðsson - leiksýning (Kómedíuleikhúsið)
  • Vestfirskir listamenn & lífskúnstnerar (Ágúst G. Atlason)
  • Find Ice (Listaskóli Rögnvaldar Ólafssonar, dansdeild)
  • Æringur - listahátíð í Bolungarvík (Kolbrún Ýr Einarsdóttir)
  • Pönk á Patró 2011 (Jóhann Ágúst Jóhannsson)
  • Heyrðu mig nú (Listavélin)

 

Kr. 300.000

  • Stækkun á sýningarými Skrímslaseturs (Félag áhugamanna um skrímslasetur)
  • Every child has the right to laugh (Sarah Thomas)

 

Kr. 250.000

  • Hnífsdalur í 100 ár (Íbúasamtök Hnífsdals)
  • Börn og myndlist (Listaskóli Rögnvaldar Ólafssonar)
  • Mikki og melrakkarnir á fjalirnar (Melrakkasetur Íslands)

 

Kr. 200.000

  • Strengur / Hringfjórðungur (Jón Sigurpálsson)
  • Einstök sýning - listamaðurinn með barnshjartað (Gíslastaðir)
  • Leikferð um Vestfirði (Leikfélag Hólmavíkur)
  • Skelin: Menningardagskrá á Ströndum veturinn 2010-2011 (Þjóðfræðistofa)
  • Menningarkort og söguferðir Ísafjarðardjúpi (Ögur ehf.)
  • Menning og saga Bíldudal (Birna Friðbjört Stephensen Hannesdóttir)
  • Hemúll á heljarslóð (Arnar S. Jónsson)
  • Listasmiðja í skrímslagerð I og II (Ása Dóra Finnbogadóttir)

 

Kr. 100.000

  • Ugla sat á kvisti (Þjóðfræðistofa)

 

Meðfylgjandi mynd er frá síðustu úthlutun styrkja frá Menningarráði Vestfjarða, sem fram fór í Melrakkasetrinu í Súðavík í desember. Myndina tók Brian Berg.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31