Tenglar

19. mars 2009 |

Menningarráð Vestfjarða auglýsir eftir umsóknum

Formaður Menningarráðs er Gunnar Hallsson í Bolungarvík.
Formaður Menningarráðs er Gunnar Hallsson í Bolungarvík.

Menningarráð Vestfjarða hefur nú auglýst eftir styrkumsóknum vegna fyrri úthlutunar á árinu 2009 til menningarverkefna á Vestfjörðum. Um er að ræða styrki til afmarkaðra menningarverkefna og eru umsóknir bornar saman á samkeppnisgrundvelli, þannig að fara þurfa saman áhugaverð verkefni og góðar umsóknir til að líkur séu á að styrkur fáist.

 

Menningarráð Vestfjarða hefur skilgreint ákveðna áhersluþætti við hverja úthlutun til þessa. Við fyrri úthlutun 2009 verður litið sérstaklega til menningarverkefna sem fela í sér eftirtaldar áherslur:

 

a. Nýsköpun á sviði lista og menningarstarfs.

b. Verkefni sem miða að fjölgun starfa.

c. Samstarf milli menningarstofnana, byggðarlaga eða listgreina og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað.

d. Verkefni sem stuðla að samvinnu atvinnumanna í listum og leikmanna.

e. Verkefni sem miða að því að listnemar eða ungir listamenn frá Vestfjörðum komi í auknum mæli að listsköpun og menningarstarfi í fjórðungnum.

f. Viðamikil samstarfsverkefni sem byggja á samstarfi þriggja eða fleiri aðila og leiða til samstarfs milli ólíkra svæða á Vestfjörðum.

 

Umsóknarfrestur er til föstudagsins 17. apríl. Rafrænt umsóknarblað, leiðbeiningar og úthlutunarreglur að finna á vef Menningarráðsins. Allar nánari upplýsingar gefur menningarfulltrúi Vestfjarða, Jón Jónsson, í síma 891 7372 og netfanginu menning@vestfirdir.is.

 

Vefur Menningarráðs Vestfjarða

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Nvember 2024 »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30