Tenglar

14. maí 2010 |

Menningarráð Vestfjarða úthlutar 15 milljónum króna

Úr Skrímslasetrinu á Bíldudal.
Úr Skrímslasetrinu á Bíldudal.
Fyrri styrkúthlutun Menningarráðs Vestfjarða á árinu 2010 fer fram í Skrímslasetrinu á Bíldudal á morgun, laugardaginn 15. maí, og hefst athöfnin kl. 15. Alls fá 34 verkefni framlög að þessu sinni á bilinu 75 þúsund til 1 milljón króna, samtals að upphæð 15 milljónir. Umsóknir sem bárust að þessu sinni voru 78 og var samtals beðið um rúmar 55 milljónir í verkefnastyrki en heildarsamtala fjárhagsáætlana vegna verkefna var þrisvar sinnum hærri.

 

Styrkirnir fara til margvíslegra verkefna í fjölbreyttum listgreinum og var áhersla að þessu sinni lögð á að styrkja verkefni sem fela í sér nýsköpun og fjölgun atvinnutækifæra tengdra listum og menningu, samvinnu og menningartengda ferðaþjónustu. Vestfirskt menningarlíf lætur engan bilbug á sér finna og sóknarhugur og bjartsýni eru ríkjandi, segir í tilkynningu frá Jóni Jónssyni á Kirkjubóli við Steingrímsfjörð, menningarfulltrúa Vestfjarða.

 

Öllum styrkumsóknum sem bárust hefur verið svarað í tölvupósti á þau netföng sem gefin voru upp í umsóknum. Heildarlisti um styrkt verkefni verður síðan birtur á vef Menningarráðs Vestfjarða og sendur fjölmiðlum eftir athöfnina á Bíldudal. Menningarráðið mun næst auglýsa eftir umsóknum um styrki í haust.

 

Athöfnin er öllum opin og þeir sem standa í eldlínunni í menningarstarfi á Vestfjörðum eru sérstaklega boðnir velkomnir. Á dagskrá eru erindi og afhending styrkja og í lokin á þessari formlegu athöfn verður boðið upp á veitingar.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31